SKÁLDSAGA

Vornætur á Elgsheiðum

Vornætur á Elgshæðum er safn af samhangandi sögum eftir vesturíslenska rithöfundinn Jóhann Magnús Bjarnason. Eins og saga hans um Eirík Hansson endurspeglar hún vel hlutskipti og tilveru innflytjenda í Kanada á síðari hluta nítjándu aldar enda skrifar hann af reynslu. Jóhann sjálfur flutti til Kanada árið 1875 einugis níu ára gamall. Hann lærði til kennara og varð kennsla hans ævistarf og þótti hann góður kennari. Samhliða kennslunni var hann afkastamikill og fjölhæfur rithöfundur. Af öðrum þekktum verkum eftir Jóhann má nefna sögurnar Brasilíufararnir, Eiríkur Hansson og kvæðin Litla stúlkan með ljósu flétturnar tvær og Grímur frá Grund.   Nýlega var bókin þýdd á ensku undir heitinu Errand Boy in the Mooseland Hills og hlaut afar jákvæða dóma.


HÖFUNDUR:
Jóhann Magnús Bjarnason
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 452

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :